Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunar Fjallabyggðar v/Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar
Velkomin í vefverslun Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar sem er í eigu og rekstri Fjallabyggðar kt. 580706-0880,. Gránugötu 24, Fjallabyggð. VSK nr. 93241.
Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Íþróttamiðstöðina í Fjallabyggð.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Íþróttamiðstöðvar í Fjallabyggð samþykkir þú þessa skilmála.
- SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru sundkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða
- Tímabilskort eru kort sem gefið er út með nafni og kennitölu einstakling er aðeins til einkanota fyrir þann einstakling.
- Sundkortin veita aðgang að sundlaugar Fjallabyggðar.
- Líkamsræktarkort veitir aðgang í líkamsræktir og sundlaugar í Fjallabyggðar.
- Kortin eru sjálfsafgreiðslukort
- NOTENDAREGLUR
- Skiptakort:
- hægt er að kaupa sundkort/skiptakort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
- fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
- Tímabilakort:
- eru kort sem gefið er út fyrir ákveðinn einstakling og er til einkanota fyrir þann einstakling.
- eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, aldraða og aðra skilgreinda hópa.
- kortið veitir ótakmarkaðar ferðir yfir fyrirfram skilgreint tímabil.
- GJALDSKRÁ
Fjallabyggð gefur árlega út gjaldskrá fyrir stofnanir Fjallabyggðar. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Fjallabyggðar www.fjallabyggd.is og hangir uppi á starfsstöðum.
- SKILAREGLUR
Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilskort. Ekki er hægt að leggja inn sundkort tímabundið. Ekki er boðið upp á framselja tímabilskort á aðra kennitölu.
- VANEFNDIR, LOKUN KORTA
Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Fjallabyggð heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.
- GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
- MISNOTKUN Á KORTUM
Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota tímabilakort sem skráð er á annan einstakling hefur Fjallabyggð heimild til þess að loka viðkomandi korti.
- PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.